Karaoke
Í Karaoke herberginu býðst ykkur til að taka lagið. frábært úrval í boði.
Úrval japanskra bókmennta í gegnum aldirnar verður til sýnis. Umsjónarmenn bássins munu gera sitt besta til þess að svara spurningum sem gestir hafa um ríkan arf japanskra bókmennta.
Fólki bíðst að koma til okkar í básinn og kynna sér japanska j-pop og j-rock tónlist. Einnig verða sýnd japönsk tónlistarmyndbönd.
Kl. 14:00 á aðalsviðinu á Háskólatorgi mun japanska hljómsveitin Tansuygyo (Ferskvatnsfiskur) spila nokkur lög.
Í matarbásnum verður gestum og gangandi boðið að bragða léttar veitingar. Eigandi SuZushii í Kringlunni og
sushigerðarmeistarinn Sigurður Karl Guðgeirsson mun aðstoða nemendur í Japönskudeild HÍ við að framreiða hágæða sushibita á staðnum, auk annarra smárétta sem hefðbundnir eru í Japan. Fyrstir koma, fyrstir fá, og allt endurgjaldslaust.